Villa við að hlaða síðu.
Prófaðu að endurnýja síðuna. Ef það gengur ekki gæti vandamálið tengst netkerfinu. Þú getur notað prófunarsíðuna okkar til að sjá hvað kemur í veg fyrir hleðslu síðunnar.
Kynntu þér hugsanleg vandamál í nettengingu eða hafðu samband við notendaþjónustu til að fá meiri hjálp.

Droplaugarsona saga

rafbók
Droplaugarsona saga er talin vera með eldri Íslendingasögum. Sögusviðið er Austurland, einkum svæðið beggja vegna Lagarfljóts. Segir þar frá bræðrunum Helga og Grími, sonum Droplaugar á Arneiðarstöðum í Fljótsdal. Helgi fór fyrir þeim bræðrum og var hann kappsfullur í meira lagi. Hann átti í langvinnum deilum við Helga Ásbjarnarson í Mjóanesi og síðar á Eiðum, friðsaman höfðingja. Þær deilur enduðu með falli Helga Droplaugarsonar. Það kom í hlut Gríms að hefna bróður síns. Lýsingarnar á þessum atvikum, þ.e. falli Helga Droplaugarsonar og síðar nafna hans Ásbjarnarsonar, eru með eftirminnilegri frásögnum í fornritum okkar. Í sögunni kynnumst við fleiri litríkum persónum, til dæmis nokkrum kvenskörungum sem hafa mikil áhrif á framvindu sögunnar. Nægir þar að nefna auk Droplaugar þær Gró á Eyvindará og Álfgerði lækni í Ekkjufelli. Þórdís todda, kona Helga Ábjarnarsonar, kemur einnig við sögu en hún gegnir stærra hlutverki í öðrum sögum af Austurlandi, t.d. í Gunnars þætti Þiðrandabana.
  • Höfundar

  • Útgefandi

  • Útgáfudagur

  • Snið

  • Tungumál

Snið

  • OverDrive Read
  • EPUB-rafbók

Tungumál

  • Íslenska