Blaðamaðurinn Dicte Svendsen fagnar fertugsafmæli sínu – nýflutt til Árósa í kjölfar skilnaðar – ásamt vinkonum sínum, Anne og Ida Marie, á útikaffihúsi við Árósará. En afmælisveislan fær skjótan enda þegar afmælisbarnið sér tilsýndar lík af ungabarni í ánni. Dicte fær það hlutverk að skrifa um málið í blað sitt. Áður en hún veit af er hún sjálf komin á kaf í rannsókn lögreglunnar. Líf vinkvennanna þriggja fléttast óvænt inn í atburðarásina – og þær þurfa allar að horfast í augu við drauga fortíðarinnar.
Elsebeth Egholm er einn mest lesni sakamálasagnahöfundur Danmerkur. Vinsælir sjónvarpsþættir hafa verið gerðir eftir bókum hennar um Dicte og hafa þeir meðal annars verið sýndir á RÚV. Leyndir gallar er fyrsta sagan í bókaflokknum um Dicte.