Hvað merkir það að koma heim? Hvað er heimili? Hvað er fjölskylda? Í þessari lágstemmdu en áleitnu skáldsögu er brugðið upp áhrifamikilli mynd af heimili og fjölskyldulífi þar sem ekkert er sem sýnist — undir yfirborðinu leynast tortryggni og fordómar, skinhelgi og skömm, en líka blessun, gleði og náð..
Heima er sjálfstætt framhald skáldsögunnar Gilead sem kom út í íslenskri þýðingu á síðasta ári.