Gamall prestur í bænum Gilead í Iowa í Bandaríkjunum veit að hann á skammt eftir ólifað. Hann skrifar ungum syni sínum bréf til að miðla reynslu sinni og sögu fjölskyldu sinnar og bæjarins. Frásögnin er áhrifarík innsýn í umbrotatíma og átök og glímu fólks við lífið og dauðann, mannlega reisn, breyskleika og dýpstu rök tilverunna.
Metsöluhöfundurinn Marilynne Robinson er einn virtasti rithöfundur samtímans og bækur hennar hafa hlotið öll helstu bókmenntaverðlaun Bandaríkjanna.