Villa við að hlaða síðu.
Prófaðu að endurnýja síðuna. Ef það gengur ekki gæti vandamálið tengst netkerfinu. Þú getur notað prófunarsíðuna okkar til að sjá hvað kemur í veg fyrir hleðslu síðunnar.
Kynntu þér hugsanleg vandamál í nettengingu eða hafðu samband við notendaþjónustu til að fá meiri hjálp.

Fimmta árstíðin

rafbók

Hvað er svo hræðilegt að sá sem upplifir það getur ekki talað um það?

Snemma vors gengur ung barnafjölskylda fram á illa útleikið lík af konu í skóginum við Linköping í Svíþjóð. Líkamsleifarnar bera það með sér að konan hefur verið pyntuð.

Rannsóknarlögreglukonan Malin Fors tengir líkfundinn undir eins við óleyst nokkurra ára gamalt mál sem henni er hugstætt. Þá hafði ungri konu, Maríu Murvall, verið nauðgað og misþyrmt svo hrottalega í sama skógi að hún sturlaðist og hafði ekki mælt orð af vörum síðan. Af tilviljun kemst Malin í kynni við sálfræðing sem þekkir til fleiri mála af svipuðum toga — og skyndilega virðast örlög Maríu Murvall aðeins vera hluti af mun stærri ráðgátu.

Mons Kallentoft er einn af þekktustu höfundum Svíþjóðar. Ritröð hans um Malin Fors, lögreglukonu í Linköping, hefur notið mikilla vinsælda. Fimmta árstíðiner fjórða bókin um Malin Fors en hinar fjórar — Sumardauðinn, Haustfórn, Vetrarblóðog Vorlík— hafa selst í meira en einni milljón eintaka og verið þýddar á 24 tungumál.

Snið

  • OverDrive Read
  • EPUB-rafbók

Tungumál

  • Íslenska