Villa við að hlaða síðu.
Prófaðu að endurnýja síðuna. Ef það gengur ekki gæti vandamálið tengst netkerfinu. Þú getur notað prófunarsíðuna okkar til að sjá hvað kemur í veg fyrir hleðslu síðunnar.
Kynntu þér hugsanleg vandamál í nettengingu eða hafðu samband við notendaþjónustu til að fá meiri hjálp.

Götóttu skórnir

rafbók
Konungur einn átti 12 dætur sem allar voru forkunnarfagrar. Á hverjum morgni vöknuðu dætur konungs, grunlausar um það hvers vegna skór þeirra væru gatslitnir, líkt og þær hefðu verið úti að dansa alla nóttina. Konungur vildi komast að hinu sanna og bauð hverjum þeim sem gat leyst ráðgátuna að giftast einni kóngsdótturinni. Ef ekki tækist að leysa ráðgátuna skildi sá hinn sami deyja. Margir freistuðust til að ráða í gátuna án árangurs og týndu þannig lífinu. Kemur þá til sögunnar særður hermaður sem hyggst reyna við ráðgátuna. Á vegi hans verður gömul kona sem virðist vita hvernig í pottinn er búið og gefur honum góð ráð. Hermaðurinn býst nú til að ráða gátuna um götóttu skóna þar sem kemur í ljós að dætur konungs eru kannski ekki alveg eins grunlausar og þær segjast vera. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.

Snið

  • OverDrive Read
  • EPUB-rafbók

Tungumál

  • Íslenska