Villa við að hlaða síðu.
Prófaðu að endurnýja síðuna. Ef það gengur ekki gæti vandamálið tengst netkerfinu. Þú getur notað prófunarsíðuna okkar til að sjá hvað kemur í veg fyrir hleðslu síðunnar.
Kynntu þér hugsanleg vandamál í nettengingu eða hafðu samband við notendaþjónustu til að fá meiri hjálp.

Króka-Refs rímur og Rímur af Lykla-Pétri og Magelónu

rafbók
Hallgrímur Pétursson er eflaust frægastur þeirra Íslendinga sem lifðu á sautjándu öld og þótt hann sé kannski helst kunnur fyrir Passíusálmana og önnur trúarkvæði samdi hann einnig ádeilur, tækifæriskviðlinga og rímur svo eitthvað sé upptalið. Hallgrímur fæddist árið 1614, annaðhvort í Gröf á Höfðaströnd eða Hólum í Hjaltadal. Hann lést í Ferstiklu skammt frá Saurbæ á Hvalfjarðasströnd þar sem hann þjónaði lengst sem prestur 18. desember 1674. Á 17. öld voru ortar a.m.k. tvennar rímur út af sögunni um Króka-Ref, rímur Hallgríms og rímur Þorvalds Rögnvaldssonar á Sauðanesi, sem nú eru glataðar að mestu. Gísli Konráðsson segir þá sögu í einni af syrpum sínum, og kveðst hafa hana eftir handriti síra Gunnars Pálssonar, að eitt sinn hafi síra Hallgrímur beðið mann nokkurn, er fór norður í Vaðlaþing, að taka þar fyrir sig Refs-rímur, og hafi þá kveðið: Sjáir þú mann með sívalt nef þar seggir eru að þinga, taktu hjá honum rímur af Ref og reiddu þær fyrir mig hingað.

Snið

  • OverDrive Read
  • EPUB-rafbók

efnisorð

Tungumál

  • Íslenska