Villa við að hlaða síðu.
Prófaðu að endurnýja síðuna. Ef það gengur ekki gæti vandamálið tengst netkerfinu. Þú getur notað prófunarsíðuna okkar til að sjá hvað kemur í veg fyrir hleðslu síðunnar.
Kynntu þér hugsanleg vandamál í nettengingu eða hafðu samband við notendaþjónustu til að fá meiri hjálp.

Ævintýri

rafbók
Stundum hefur það verið sagt um okkur Íslendinga að við hlúum illa að okkar eldri skáldum og verkum þeirra og það á sannarlega við um þessi ævintýri Þorsteins Erlingssonar, sem alltof fáir þekkja. Birtust þau öll fyrst í tímaritinu Dýravininum, en var svo síðar safnað saman í eina bók undir heitinu Málleysingjar. Kannski hefur það haft áhrif á litla útbreiðslu þessara ævintýra að þau voru flokkuð þetta þröngt, sem er mikill skaði, því fá íslensk ævintýri hafa víðtækari vísanir, en einmitt þessi ævintýri Þorsteins. Sögurnar hafa t. a. m. á sér nokkuð austurlenskan blæ, sem sést á m. a. á nöfnum persónanna, en þar er Þorsteinn að kallast á við ævintýrin ,,Þúsund og ein nótt”, sem hann hafði mikið dálæti á sem barn. Þeir sem hafa átt því láni að fagna að alast upp með ævintýrum Þorsteins Erlingssonar vita gjörla hve skemmtileg þau eru og mikið í þau spunnið.

Snið

  • OverDrive Read
  • EPUB-rafbók

Tungumál

  • Íslenska