Villa við að hlaða síðu.
Prófaðu að endurnýja síðuna. Ef það gengur ekki gæti vandamálið tengst netkerfinu. Þú getur notað prófunarsíðuna okkar til að sjá hvað kemur í veg fyrir hleðslu síðunnar.
Kynntu þér hugsanleg vandamál í nettengingu eða hafðu samband við notendaþjónustu til að fá meiri hjálp.

Fóstbræðra saga

rafbók
Fóstbræðrasaga fjallar einkum um þá Þormóð Bersason, sem kallaður var Kolbrúnarskáld og Þorgeir Hávarsson. Þó að þessir tveir bindist vinarböndum og eigi samleið í uppivöðslusemi þegar þeir eru ungir eru þeir ólíkir um flesta hluti. Þorgeir er fyrst og fremst vígamaður sem virðist ættaður aftan úr heiðni; hugmyndaheimur hans á margan hátt úr takt við samtímamenn hans, en Þormóður er fjölbreyttari maður, kvennamaður og skáld sem getur lagað sig að breyttum aðstæðum, s.s. tileinkað sér nýja trú o.þ.h. Er sagan ólík öðrum Íslendingasögum, ekki síst fyrir afstöðu höfundar. Í flestum Íslendingasögum er höfundurinn nánast ósýnilegur í bakgrunni og lætur söguþráðinn líða áfram án þess að taka beina afstöðu, en því er hins vegar öðruvísi farið í Fóstbræðrasögu. Þar talar höfundurinn til okkar nánast með beinum hætti. Hefur sagan heillað marga vegna skemmtilegra lýsinga og sérstæðs stíls og t.a.m. byggði Halldór Kiljan Laxness sögu sína „Gerplu“ á Fóstbræðrasögu.
  • Höfundar

  • Útgefandi

  • Útgáfudagur

  • Snið

  • Tungumál

Snið

  • OverDrive Read
  • EPUB-rafbók

Tungumál

  • Íslenska