Villa við að hlaða síðu.
Prófaðu að endurnýja síðuna. Ef það gengur ekki gæti vandamálið tengst netkerfinu. Þú getur notað prófunarsíðuna okkar til að sjá hvað kemur í veg fyrir hleðslu síðunnar.
Kynntu þér hugsanleg vandamál í nettengingu eða hafðu samband við notendaþjónustu til að fá meiri hjálp.

Líkami okkar, þeirra vígvöllur

rafbók

Þessi bók hins margverðlaunaða stríðsfréttarita og meðhöfundar bókarinnar Ég er Malala er fyrsta meiriháttar umfjöllunin um umfang nauðgana og kynferðisofbeldis í stríðsátökum nútímans.

Christina Lamb hefur flutt fréttir af stríðsátökum í meira en þrjátíu ár og orðið æ meira hugsi yfir þeim hluta átakanna sem ekki hefur verið sagt frá. Í Líkami okkar, vígvöllur þeirra lætur hún raddir kvenna heyrast og afhjúpar hvernig herir, hryðjuverkamenn og vígasveitir beita nauðgunum sem stríðsvopni í nútímaátökum til þess að niðurlægja, hræða og stunda kynþáttahreinsanir. Þrátt fyrir að nauðganir hafi verið skilgreindar sem alþjóðlegur stríðsglæpur árið 1919 hefur Alþjóðaglæpadómstóllinn aldrei sakfellt neinn. Þessi sláandi nýja bók er ákall til okkar um að hlusta og hafast að gegn þessum vanræktasta glæp heimsins.

Nauðganir kunna að vera jafn gamlar stríðsátökum en þær eru glæpur sem hægt er að fyrirbyggja. Í bók sinni krefst Christina Lamb þess að við vöknum til vitundar og sjáum þann skelfilegan raunveruleika sem fórnarlömb nauðgana, aðallega konur, hafa þurft að þola. Að bera þessu vitni tryggir ekki að það muni ekki eiga sér stað aftur, en það getur orðið til þess að heimurinn geti ekki lengur sagt að hann hafi ekkert vitað.

Snið

  • OverDrive Read
  • EPUB-rafbók

Tungumál

  • Íslenska