Villa við að hlaða síðu.
Prófaðu að endurnýja síðuna. Ef það gengur ekki gæti vandamálið tengst netkerfinu. Þú getur notað prófunarsíðuna okkar til að sjá hvað kemur í veg fyrir hleðslu síðunnar.
Kynntu þér hugsanleg vandamál í nettengingu eða hafðu samband við notendaþjónustu til að fá meiri hjálp.

Jóhannes Einarsson

rafbók

Jóhannes Einarsson verkfræðingur hefur átt fjölbreytta starfsævi, þótt hann sé fyrst og fremst kunnur fyrir að hafa haslað sér völl í alþjóðlegum flugheimi.

Að loknu verkfræðiprófi í Bandaríkjunum var Jóhannes einn af fyrstu starfsmönnum Íslenskra aðalverktaka á Keflavíkurflugvelli. Síðan var hann í sex ár verksmiðjustjóri í nýrri verksmiðju Coldwater, fisksölufyrirtækis Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna í Bandaríkjunum.

Eftir það réðst hann til Loftleiða sem þá var á hátindi velgengnisára sinna. Sem einn af framkvæmdastjórum Loftleiða vann Jóhannes meðal annars að stofnun Cargolux í Lúxemborg. Þangað flutti Jóhannes svo á miðjum aldri og varð einn af yfirmönnum Cargolux sem á fáum árum varð eitt af stærstu vöruflutningafélögum heims.

Þegar Jóhannes lét af daglegum störfum varð hann ræðismaður Íslands í Mónakó.

Í þessari bók rekur Jóhannes viðburðarika starfsævi og segir hispurslaust frá því sem á daga hans hefur drifið, ekki síst hörðum átökum í viðskiptalífinu.

Snið

  • OverDrive Read
  • EPUB-rafbók

Tungumál

  • Íslenska