Kiona býr á lítilli og afskekktri eyju í Suður-Kyrrahafi þar sem hún vinnur við köfun og perluvinnslu, auk þess sem hún aðstoðar móður sína í sjúkraskýlinu. Dag einn ferst lítil snekkja á rifi við eyjuna. Um borð er Svíinn Erik sem heimamenn bjarga við illan leik.
Koma hans á eyjuna verður upphaf á stórfenglegri spennu- og ástarsögu sem berst um fjórar heimsálfur. Hrífandi skáldsaga um mannleg örlög, ást og peninga, ofbeldi og yfirgang, fátækt og einangrun.