Þegar Vilhjálmur Vilhjálmsson lést í bílslysi í Lúxemborg um páskana 1978 var hann aðeins þrjátíu og þriggja ára gamall. Lög hans höfðu smogið svo kirfilega að hjartarótum þjóðarinnar að fólki fannst sem það hefði misst nákominn ættinga við fráfall hans. Óhætt er að segja að þrjátíu árum eftir dauða sinn sé hann dáðari en nokkru sinni. Allir þekkja umsvifalaust vörumerki hans, hina hreinu og björtu rödd. Allir geta raulað Söknuð, Skýið og Lítinn dreng. Færri vita hins vegar að Vilhjálmur var forfallinn lesandi vísindaskáldsagna, var með próf í dáleiðslu, lagði stund á rússnesku og svahílí og tók virkan þátt í alþjóðlegri réttindabaráttu flugmanna. Hann sló ungur í gegn með lögum sem þóttu helst við hæfi hinna eldri en varð sífellt uppreisnargjarnari með aldrinum. Jón Ólafsson segir nú í fyrsta sinn alla sögu eins dáðasta listamanns þjóðarinnar fyrr og síðar. Með ríkulegu skopskyni og innsæi tónlistarmannsins rekur hann lífsþráð Hólmars úr Höfnum sem að lokum varð goðsögnin Vilhjálmur Vilhjálmsson.
-
Höfundar
-
Útgefandi
-
Útgáfudagur
22. ágúst 2012 -
Snið
-
OverDrive Read
- ISBN: 9789935900814
-
EPUB-rafbók
- ISBN: 9789935900814
- Skráarstærð: 4685 KB
-
-
Tungumál
- Íslenska
Hvers vegna er aðgengi takmarkað?
×Aðgengi getur verið breytilegt. Þú getur tekið titilinn aftur frá og fengið hann lánaðan um leið og hann verður til útláns.
Kindle-skráarsnið er ekki stutt fyrir:
×Upplesnar rafbækur
×OverDrive Read-snið þessarar rafbókar inniheldur upplestur sem heyrist þegar þú lest bókina í vafranum. Frekari upplýsingar eru hér.