Frægasta vampírusaga allra tíma birtist loksins í heild sinni á íslensku. Gotneska hrollvekjan Drakúla eftir Bram Stoker er ein vinsælasta skáldsaga allra tíma sem hefur verið skrifuð á ensku. Allt frá því hún kom út árið 1897 hefur hún ávallt verið fáanleg. Á Íslandi kom sagan út í endursögn Valdimars Ásgeirs-sonar og birtist undir nafninu Makt myrkranna sem neðanmálssaga í tímaritinu Eimreiðin snemma á 20. öld. Einnig hafa birst endursagnir fyrir yngri lesendur en sagan í heild sinni hefur aldrei verið þýdd, fyrr en nú. Sagan er alþekkt og segir frá vampírunni Drakúla greifa og komu hans til Englands. Hann nýtur til þess aðstoðar Jonathans Harkers, sem er fulltrúi lögmannstofu í Lundúnum. Greifinn drekkur blóð úr nokkrum aðilum í Englandi, þeirra á meðal Minu Harker, eiginkonu Jonathans, og berst Harker, með aðstoða vina þeirra hjóna, m.a. Abrahams van Helsings, við greifann og að losa Minu undan áhrifum og bölvun Drakúla. Áhrif Drakúla verða seint vanmetin. Óteljandi kvikmyndir hafa verið gerðar þar sem greifinn kemur við sögu og hafa margir leikarar spreytt sig á hlutverki hans, m.a. Bela Lugosi, Gary Oldman og Christopher Lee. Þýðingu vann Gerður Sif Ingvarsdóttir.
- Barnabækur á íslensku
- Íslendingasögur
- Hljóðbækur á íslensku
- Spennusögur á íslensku
- Ástarsögur á íslensku
- Barna- og unglingabækur á íslensku
- Ungfó á íslensku
- Ævintýri á íslensku
- Bókabeitan
- Bækur á íslensku
- Sjá allt
- Hrollvekjandi rafbækur
- Léttmeti
- Fantasíur
- Vísindaskáldskapur
- Ævisögur og endurminningar
- Glæpasögur
- Ástarsögur og skvísubækur
- Handverksbækur
- Vinsælast
- Matreiðslubækur
- Myndasögur
- Myndlist
- Myndabækur
- Sjá allt
- Á meðan þú bíður...
- Hrollvekjandi hljóðbækur
- Léttmeti
- Vinsælast
- Hinsegin hljóðbækur
- Fantasíur - Hljóðbækur
- Glæpasögur - hljóðbækur
- Hljóðbækur í bílinn
- Ástarsögur og skvísubækur - Hljóðbækur
- Ævisögur og endurminningar - Hljóðbækur
- Vísindaskáldsögur
- Kósí hljóðbækur
- Sögur fyrir Svefninn
- Sjá allt
- Sögulegar skáldsögur
- Kósí fantasíur
- Kósí krimmar
- Furðusögur
- Barna- og unglingabækur
- Myndasögur
- Tungumálanámskeið
- Bækur á pólsku - książki po polsku
- Ljóð
- Dublin bókmenntaverðlaunin
- Booker-verðlaunin
- Nóbelsverðlaun
- Pulitzer verðlaunin
- Sjá allt